Skilmálar þjónustu

Almennar upplýsingar

Seljandi er Start Studio, rekið undir kennitölu Unni Stellu Níelsdóttur 250400-3730. Kaupendur eru þeir sem skráðir eru fyrir kaupum skv. reikningi. Aðeins þeir sem náð hafa 15 ára aldri mega panta vörur á Start Studio. Skilmálarnir geta tekið minniháttar breytingum án fyrirvara.

Vöruafhending

Hægt er að sækja pantanir í verslun okkar að Álfabyggð 8, 600 Akureyri. Einnig sendum við vörur hvert á land sem er með Póstinum daglega. Hægt er að óska eftir samdægurs akstri á Akureyri gegn vægu gjaldi, gildir aðeins ef pantað er fyrir kl 15:00 alla virka daga. Ef pöntun er ekki sótt innan viku áskiljum við okkur rétt til að ógilda pöntunina.

Skilaréttur og réttur til að falla frá samningi

Almennur Skilaréttur
Start Studio býður upp á 14 daga skilarétt sem felur í sér að viðskiptavinur hefur val um að fá fulla endurgreiðslu eða inneignarnótu í samræmi við kaupverð. Almennur skilaréttur á við þegar þegar vara er keypt með öðrum hætti en við fjarsölu eða samningi utan fastrar starfsstöðvar (sjá neðar um rétt til að falla frá samningi).
Neytandi þarf að sýna fram á  að varan hafi verið  keypt af Start Studio. Neytandi skal vera ábyrgur fyrir þeirri rýrnun á verðgildi vöru sem stafar af meðferð vörunnar, annarrar en þeirrar sem nauðsynleg er til að staðfesta eiginleika, einkenni og virkni hennar. Allar umbúðir og allir fylgihlutir þurfa að vera til staðar. 
Starfsfólk Start Studio áskilur sér rétt til þess að taka skilagjald ef þörf þykir og þá sér í lagi ef eitthvað af framangreindum skilyrðum er ekki uppfyllt.

Skilarétturinn gildir ekki um vörur sem hægt er að fullnýta á innan við 14 dögum. Hann gildir ekki um sérsniðnar pantanir.

Réttur til að falla frá samningi
Um viðskipti í netverslun Start Studio, aðra fjarsölusamninga og um rétt neytenda til að falla frá samningi gilda lög um neytendasamninga nr. 16/2016. 
Með samþykki þessara skilmála staðfestir neytandi að hann er upplýstur um rétt sinn til þess að falla frá samningi, þ.e. sá frestur rennur út fjórtán dögum eftir að gengið var frá samningi um kaup á þjónustu eða neytandi tók vöru í sína vörslu. Byrjar fresturinn jafnframt að líða þegar þriðji aðili sem viðskiptavinur tilgreinir tekur vöru í sína vörslu.
Réttur til að falla frá samningi á þó ekki við ef innsigli á innsigluðum vörum hefur verið rofin. 
Viðskiptavinur þarf að tilkynna Start Studio um ákvörðun sína um að falla frá samningi áður en fresturinn til að falla frá honum rennur út og þarf að tilkynna það í gegnum tölvupóstfangið unnur@startstudio.is eða með annarri rekjanlegri yfirlýsingu, má þar sem dæmi nefna að símtal telst ekki sem ótvíræð rekjanleg yfirlýsing. Neytandi skal vera ábyrgur fyrir þeirri rýrnun á verðgildi vöru sem stafar af meðferð vörunnar, annarrar en þeirrar sem nauðsynleg er til að staðfesta eiginleika, einkenni og virkni hennar.
Kaupandi þarf að endursenda eða afhenda vöruna til Start Studio án ástæðulausrar tafar og eigi síðar en 14 dögum eftir daginn sem kaupandi tilkynnir okkur ákvörðun sína um að falla frá vörukaupunum. Frestur til að tilkynna um að viðskiptavinur falli frá samningi telst virtur ef vara er sannanlega endursend fyrir lok 14 daga tímabilsins. Kaupandi ber beinan kostnað af endursendingu vörunnar. Staðlað eyðublað með yfirlýsingu um að fallið sé frá samningi.
(fylltu út og sendu þessa yfirlýsingu ef þú óskar eftir að falla frá samningnum) 
‒ Til (hér skal setja inn nafn seljandans, heimilisfang og, ef hægt er, bréfasímanúmer og netfang):
‒ Ég/Við (*) tilkynni/tilkynnum (*) hér með að ég/við (*) óska/óskum (*) eftir að falla frá samningi mínum/okkar (*) um sölu á eftirfarandi vöru (*)/um veitingu eftirfarandi þjónustu (*)
‒ Sem voru pantaðar hinn (*)/mótteknar hinn (*)
‒ Nafn neytanda/neytenda
‒ Heimilisfang neytanda/neytenda
‒ Undirritun neytanda/neytenda (einungis ef þetta eyðublað er á pappírsformi)
‒ Dagsetning
(*) Eyðið eftir því sem við á

Upplýsingar

Start Studio veitir upplýsingar um vörur og þjónustu með fyrirvara um innsláttarvillur, verð, myndir, lagerstöðu og bilanir. Ef vara er uppseld þá áskilur Start Studio sér rétt til að aflýsa sölu í heild eða að hluta til og endurgreiða upphæðina. Farið er með persónuupplýsingar sem algjört trúnaðarmál og þær einungis nýttar til að ljúka viðkomandi viðskiptum og tryggja góða þjónustu. Viðkvæmar greiðsluupplýsingar fara ávallt í gegnum örugga vefsíðu þar sem notast er við SSL tengingar, slíkar upplýsingar koma aldrei við sögu hjá okkur né vefsíðunni okkar. 

Greiðsla

Allar kortagreiðslur fara í gegnum örugga, dulkóðaða kortasíðu með alþjóðlegum stöðlum um öryggi kortaupplýsinga. Einnig bjóðum við upp á millifærslu, reiðufé og fleira.

Verð

Sama verð gildir almennt á netinu og í verslun en afsláttarkóðar gilda aðeins ef pantað er á netinu. Fyrirtæki, einstaklingar og stofnanir geta sótt um sérstök afsláttarkjör ef viðskipti eru mikil og tíð. Verð eru birt með virðisauka. Verð geta breyst án fyrirvara.

Ábyrgð

Start Studio veitir tveggja ára neytendaábyrgð til einstaklinga skv. neytendalögum. Fyrir vörur sem ætlaðar eru umtalsvert lengri endingartími en tvö ár framlengis tilkynningarfrestur neytenda í 5 ár. Ábyrgð til fyrirtækja er eitt ár skv. lögum um lausafjárkaup.
Gildir ábyrgð Start Studio einungis á vörum sem seldar eru af Start Studio. Ef vörur hafa lengri ábyrgðartíma þá er það yfirleitt tekið fram sérstaklega á reikningi. Það hvort vara hefur fimm ára ábyrgð ræðst þó endanlega af ætluðum endingartíma vöru.
Sýna þarf fram á  að varan sé keypt af Start Studio með framvísun reiknings, færslum á kennitölu eða hægt sé að sýna fram á vörukaup með öðrum óyggjandi hætti. Ábyrgð nær hvorki til eðlilegs slits eða notkunar á rekstrarvörum.
Ábyrgð fellur úr gildi ef vara hlítur slæma/ranga meðferð.

Eignaréttur

Seldar vörur eru eign seljanda þar til kaupverð er að fullu greitt, þetta gildir einnig um reikningsviðskipti.

Nánari upplýsingar

Okkar markmið er skýrt, það er að bjóða vandaðar vörur á góðu verði með eins góðri þjónustu og við mögulega getum veitt. Ef spurningar vakna eða eitthvað er óljóst í skilmálum þessum þá má hafa samband með tölvupósti á unnur@startstudio.is eða símleiðis í 695-5604. Þín ánægja er okkar markmið.

 

Með von um framtíðarviðskipti,
Start Studio